
Hugmyndir af gæðastundum um páskana í boði Kaffi kú
Vegna Covid 19 verður lokað á Kaffi kú út apríl, en við viljum á meðan hvetja fjölskyldur til að gera eitthvað skemmtilegt saman og ætlum við því að koma með nokkrar hugmyndir af gæðastundum.
Páska hugmyndabanki Kaffi kú!
– Páskaskraut – okkar uppáhalds skreyting er greina skreytt með allskyns páskaskrauti, perluðum hænum, eggjum, ungum, máluð egg og svo margt fleira 🐣🐥🌿
VAFFLA MEÐ PÁSKEGGI – bakaðu vöfflur og skreyttu með páskaegginu þínu
Páskaeggja ratleikur- getur bæði verið inni og út í garði.
Litagleði – dagur þar sem allir í fjölskylduni þurfa að vera í lituðum fötum frá toppi til táar ❤️🧡💛💚💙💜💖 svartur er ekki leyfður á þessum degi.
Ef þið viljið deila með okkur notið #kaffikú
Hlökkum til að sjá ykkur á Kaffi kú þegar allt verður komið í eðlilegar horfur.